GJÖFIN TIL ÍSLENZKRAR ALÞÝÐU

Stofngjöf Ragnars í Smára til Listasafns ASÍ

14. júní – 15. september 2019

Í Listasafni Árnesinga eru settar upp margar perlur íslenskrar listasögu þar á meðal Fjallamjólk Kjarvals ásamt verkum eftir frumkvöðlana Ásgrím Jónsson, Þórarinn B. Þorláksson og síðari kynslóð listamanna eins og Gunnlaug Scheving, Jón Engilberts, Júlíönu Sveinsdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Nínu Tryggvadóttur, Svavar Guðnason, Þorvald Skúlason og fleiri eða alls 15 listamenn. Öll listaverkin eru úr stofngjöf Ragnars í Smára til Listasafns ASÍ, en sýningin er samstarfsverkefni Listasafns ASÍ og Listasafns Árnesinga og sýningarstjóri er Kristín G. Guðnadóttir. Samtímis sýningunni gefur Listasafns ASÍ út veglega bók með sama nafni um stofngjöf Ragnars.

Í bréfi til Alþýðusambands Íslands þann 17. júní 1961 skrifar Ragnar Jónsson „Myndir þessar hef ég ákveðið að gefa samtökum íslenskra erfiðismanna – fyrir þeirra hönd Alþýðusambandi Íslands – í minningu Erlends Guðmundssonar, Unuhúsi.“ Af þeim 147 listaverkum eftir 35 listamenn, sem Ragnar gaf og teljast til stofngjafar Listasafns ASÍ eru 52 þeirra til sýnis í Listasafni Árnesinga. Að sögn Ragnars er kjarni safnsins verk eftir „fimm þekktustu listmálarana“, sem að hans mati voru þeir Ásgrímur Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Jón Stefánsson, Gunnlaugur Scheving og Þorvaldur Skúlason. Á sýningunni leitast Kristín við að fanga þá meginhugsun sem lá að baki söfnunarstefnu Ragnars og spegla sýn hans á íslenska listasögu. Hún skiptir sýningunni niður í þrjá kafla þar sem fyrst er að sjá upphafin og oft alvöruþrungin landslagsmálverk, því næst portret myndir af nokkrum þeirra listamanna sem eiga verk á sýningunni og að lokum er áherslan á upplausn formsins og sprengikraft litanna.

Kristín G. Guðnadóttir er listfræðingur sem veitti Listasafni ASÍ forstöðu um árabil og hefur ritað mikið um íslenska myndlist og verið sýningarstjóri fjölmargra listsýninga. Hún er höfundur viðamikilla bóka um Kjarval annars vegar og Svavar hinsvegar. í bókinni Gjöfin til Íslenzkrar alþýðu ritar Kristín um velgjörðarmanninn Ragnar í Smára og listaverkasafnið hans. Ritstjóri bókarinnar er Elísabet Gunnarsdóttir núverandi safnstjóri Listasafns ASÍ.

Þessi gjafmildi athafnamaður Ragnar Jónsson fæddist á Eyrarbakka 1904 og ólst þar upp uns hann fluttist 16 ára til Reykjavíkur. Að loknu verslunarprófi tveimur árum síðar hóf hann störf hjá smjörlíkisgerðinni Smára sem hann var síðar kenndur við, enda varð hann fljótlega hluthafi í verksmiðjunni. Í bókinni Gjöfin til íslenzkrar alþýðu skrifar Kristín m.a.: „Dugnaður hans og atorka beindist þó ekki einvörðungu að kaupskap, því fljótlega eftir komuna til Reykjavíkur varð hann upptendraður af menningaráhuga, enda alinn upp á Eyrarbakka þar sem menningarlíf stóð í miklum blóma. Þar var sungið, leikið og spilað á hljóðfæri og á æskuheimili Ragnars skipuðu bókmenntir auk þess veglegan sess.“

Sýningarstjóri: Kristín Guðnadóttir

Listi yfir listamennina

Í aldursröð:

Þórarinn B. Þorláksson 1867 – 1924

Ásgrímur Jónsson 1876 – 1958

Jón Stefánsson 1881 – 1962

Jóhannes S. Kjarval 1885 – 1972

Júlíana Sveinsdóttir 1889 – 1966

Gunnlaugur Scheving 1904 – 1972

Þorvaldur Skúlason 1906 – 1984

Jóhann Briem 1907 – 1991

Jón Engilberts 1908 – 1972

Svavar Guðnason 1909 – 1988

Nína Tryggvadóttir 1913 – 1968

Sigurður Sigurðsson 1916 – 1996

Louisa Matthíasdóttir 1917 – 2000

Valtýr Pétursson 1919 – 1988

Karl Kvaran 1924 – 1989