Hvítur

40 ára afmælissýning Leirlistafélags Íslands.

Pop-up sýning í sal 4

5. júní – 27. júní 2021

Á 40 ára afmælisári Leirlistafélags Íslands verður lögð áhersla á sýnileika félagsins í sem víðasta samhengi og boðið til ýmissa viðburða. Einn þeirra verður farandsýningin Hvítur, sem hefur ferðalagið sitt í Listasafni Árnesinga. Þaðan fer hún í Mjólkurbúðina á Akureyri og lýkur ferð sinni í um landið í Vitanum á Akranesi. Þema sýningarinnar er Hvítur. Öll umgjörð og verk sýningarinnar verður Hvít, á vegg eða gólfi.

Upphaf Íslenskrar leirlistar er rakið aftur til ársins 1930. Saga greinarinnar er því mjög stutt. Árið 1969 var byrjað að kenna leirlist sem listgrein við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Í mars 1981 var félagið stofnað og bar nafnið félag íslenskra leirlistamanna. Félagið var ætlað öllum menntuðum leirlistamönnum hvort sem þeir unnu að nytjalist eða frjálsri myndlist. Takmarkið var og er að efla veg og virðingu greinarinnar á Íslandi ásamt því að koma upp faglegu félagi með sambönd út í heim svo íslenskt leirlistafólk gæti fylgst með straumum og stefnum sem víðast. Nafn félagsins í dag er Leirlistafélag Íslands.

https://www.leirlist.com/

Þátttakendur:

Bjarni Viðar

Kolbrún Sigurðar

Ragnheiður Ingunn

Auður Gunnur Gunnarsdóttir

Auður Inga Ingvarsdóttir

Ása Tryggvadóttir

Daði Harðarson

Dagný Gylfadóttir

Dóra Árna

Drífa Káradóttir

Elín Guðmundsdóttir

Elísabet Haraldsdóttir

Erla Huld Sigurðardóttir

Guðný Hafsteinsdóttir

Guðný M. Magnúsdóttir

Guðrún Indriðadóttir

Halla Ásgeirsdóttir

Hólmfríður Vídalín Arnagrímsdóttir

Ingunn Erna Stefánsdóttir

Katrín Valgerður Karlsdóttir

Kristbjörg Guðmundsdóttir

Kristín Sigfríður Garðarsdóttir

Margrét Árnadóttir

Margrét Jónsdóttir

Olga Dagmar Erlendsdóttir

Ragna Ingimundardóttir

Sandra Borg Gunnarsdóttir

Sigríður Ágústsdóttir

Svetlana Matusa