
Listamannaspjall – Rebekka Kühnis
10. maí klukkan 13:00
Verið velkomin á listamannaspjall með Rebekku Kühnis, þar sem hún mun tala um sýningu sína Um skamma hríð sem nú stendur í sal 3.
Nýjustu málverk Rebekku Kühnis kanna tilveruna í náttúrunni. Svissneskættaða listakonan hefur ferðast víða um Ísland og reynsla hennar af gönguferðum hérlendis er mikilvægur sjónrænn innblástur og uppspretta fyrir þau málverk sem hún vinnur. Hún finnur fegurð í náttúrunni og leitast bæði við að fanga hana og magna, til að tjá mögulega veru í náttúrunni, einkum ástand flæðis og umbreytinga.
Fyrir Kühnis, sem flutti til Íslands árið 2015, fólst aðdráttarafl landslagsins í byrjun í þeirri „verðandi“, sem virðist einkenna hrjóstrugt landslag eyþjóðarinnar.
Þetta er mikil andstæða við fjalllent og skógi vaxið landslag Sviss, með mótuðu borgarumhverfi, sem hún skildi eftir sig.
Aðgangur ókeypis.

Leiðsögn um sýninguna Eitraðar grundir
17. maí klukkan 14:00
Verið velkomin á leiðsögn sýningarstjórans Yara Zein um sýningu Bernards Khoury Eitraðar grundir.
Í meira en tvo áratugi hefur Bernard Khoury staðið á jaðri listarinnar, hafnað hefðum hennar, afhjúpað hræsni hennar og endurbyggt tungumál hennar. Verk hans snúast ekki um byggingar. Þau fjalla um það sem byggingar sýna þegar þær eru sviptar táknmálinu og neyddar til að tala.
Þetta er fyrsta sýning hans á Íslandi, og hún er ögrandi. Hún býður ekki upp á hlutleysi heldur dregur áhorfandann inn og gerir hann samsekan.
Khoury segir sögur sem aðrir þora ekki að snerta. Sögur fólgnar í landslagi sem einkennist af átökum, útlegð, eftirliti og freistingum. Listræn sýn hans mótar svæði sem streitast gegn friði, sem bjóða ekki upp á hreinar lausnir eða auðveldan skilning.
Leiðsögnin verður á ensku.
Aðgangur ókeypis.

Listamannaspjall – Jeanette Castioni
17. maí klukkan 15:00
„List er leikur milli alls fólks á öllum tímum.“
Marcel Duchamp
Verið velkomin á listamannaspjall með Jeannette Castioni. Í innsetningu sinni í Listasafni Árnesinga kynnir Jeannette Castioni Only Data / Milli hluta og gagna: myndband sem er samtímalistaverk. Only Data nýtir þrívíðan gagnalesara til að greina fuglasöng og umbreyta hljóðinu í litskrúðugar sjónrænar hreyfimyndir. Söngur fuglsins, „Anselm“, er jafnframt settur fram með millititlum þar sem hljóðin eru hljóðrituð og lögð hvert ofan á annað. Titlarnir birtast og hverfa með skjótum hætti og í svimandi aragrúa af litum. Stundum birtast litlir gluggar innan ramma myndbandsins sem sýna menn safna kvistum og greinum; fuglafræðilegar frásagnir á þýsku, bæði vísindalegar og skáldaðar, renna yfir skjáinn, og áhorfandinn veltir því fyrir sér hvort mennirnir í myndbandinu séu að byggja sér hreiður.
Aðgangur ókeypis.

Tónleikar Sim Ying
20. maí klukkan 16:00
Aðgangur ókeypis.
Sim Ying mun flytja verk frá barokktímanum, klassíska tímabilinu og 20. öld.
Loo Sim Ying er klassískur gítarleikari og útskrifaður frá Malaysia Institute of Arts. Hann hefur hlotið verðlaun á Malaysia Youth Music Festival, þar sem hann vann fyrstu verðlaun árin 2008 og 2009 og gullverðlaun árið 2011.
Hann hefur lokið Associate- (ATCL) og Licentiate- (LTCL) prófgráðum í tónlistarflutningi frá Trinity College London, báðum með hæstu einkunn (Distinction), og hlaut jafnframt Trinity College London Award of Excellence fyrir árangur sinn í ATCL-prófinu.
Sem verðlaunahafi hefur hann komið fram á Trinity Guildhall Awards Concert og leikið á tónleikaröðinni Bel Canto á vegum Classical Music Society of Selangor/Kuala Lumpur, á 8. JB Arts Festival, hjá Alliance Française de Singapour, library@esplanade og í The Arts House.
Hann hefur tekið þátt í meistaranámskeiðum hjá alþjóðlega þekktum gítarleikurum og komið fram í Indónesíu, Singapúr og á Íslandi.