
Flos smiðja með Martynu Hopsa
8. febrúar kl. 13:00
FLOS-smiðja
8. Febrúar
Kl.13-15
Skapandi FLOS-smiðja fyrir börn og unglinga haldið í Listasafni Árnesinga. Þátttakendur skoða liti, áferð og mynstur, læra einfalda textíltækni og skapa sitt eigið mjúka listaverk sem þau taka með sér heim.
Leiðbeinandi smiðjunar er Martyna Hopsa textíl listakona.
Aldur: 10+
Skráning nauðsynleg, takmarkað pláss: fraedsla@listasafnarnesinga.is
Smiðjan er ókeypis

Augnablik Jökuls – listsmiðja
21. mars 2026 kl. 14:00-16:00
Augnablik jökuls: listasmiðja
Málað með náttúrulegum efnum.
Í listasmiðju myndlistarkvennana Írisar Maríu Leifsdóttur og Antoníu Bergþórsdóttur munu þátttakendur mála með jarðefnum frá jöklum frá Íslandi á meðan rætt er um áhrif loftslagsbreytinga. Listasmiðjan verður á Listasafni Árnesinga þann 11. apríl kl. 14-16.
Málað verður á vatnslitapappír með jökulleir, sandi og ösku frá mismunandi jöklum á Íslandi.
Lögð verður áhersla á bæði tilfinningalega og vísindalega nálgun sem hvetur þátttakendur til að íhuga hlutverk og framtíð jökla.
Þær eru með verk á sýningu í Listasafni Árnesinga ásamt Vikram Pradhan og Alberte Parnuuna þar sem þau sýna stuttmyndina Moments of a Glacier um hörfandi jökla.
Aldur: Allur aldur
Takmarkað pláss og skráning nauðsynleg á fraedsla@listasafnarnesinga.is
Smiðjan er ókeypis

Pokasmiðja
11. apríl 2026 kl. 13:00
Komdu og hannaðu þinn eigin einstaka taupoka – þú málar, stenslar og stimplar eftir þínu höfði. Við eigum litríka málningu og fjölbreytt blek svo þú getir búið til litríkan og einstakan taupoka. Skemmtileg fjölskyldusmiðja fyrir alla frá 6 ára og upp úr. Frábær samverustund fyrir alla sköpunarglaða fjölskyldumeðlimi.
Takmarkað pláss og skráning nauðsynleg.
Skráning: fraedsla@listasafnarnesinga.is
Smiðjan er ókeypis

Smiðja Nepalskir Friðafánar
23. apríl 2026 kl. 13:00
Smiðja: Nepalskir friðarfánar – skilaboð til jarðar á Listasafni Árnesinga
23.apríl sumardagurinn fyrsti.
Kl. 13-15
Í þessari skapandi smiðju kynnast börn töfrum nepalskra friðarfána og þeirri hugmynd að orð, myndir og litir geti borið óskir okkar út í heiminn. Í hefð Nepals eru fánarnir hengdir upp í náttúrunni þar sem vindurinn ber skilaboðin áfram – óskir um frið, samkennd og jafnvægi milli manns og jarðar. Smiðjan verður á Listasafni Árnesinga á sumardaginn fyrsta og í tilefni á degi jarðar sem deginum áður þann 22.apríl.
Börnin fá að hanna sína eigin friðarfána með teikningum, táknum og orðum sem endurspegla það sem þeim þykir mikilvægt: náttúruna, dýrin, jörðina, vináttu og framtíðina. Í gegnum leik og sköpun er fjallað um umhyggju fyrir umhverfinu, tengsl okkar við náttúruna og ábyrgðina sem við berum gagnvart jörðinni.
Smiðjan leggur áherslu á: sköpunargleði og sjálfstjáningu, vitund um náttúru og umhverfi, frið, samkennd og von, tengingu listar og náttúru.
Að lokum eru fánarnir hengdir upp saman – sem sameiginlegt listaverk og tákn um óskir barna til framtíðar jarðarinnar.

Grafíksmiðja fyrir fjölskyldur
23. maí 2026 frá kl. 13:00 – 15:00
Grafíksmiðja fyrir börn og fjölskyldur á Listasafni Árnesinga
Kynntu þér spennandi heim prentlistar! Í þessari skapandi smiðju læra börn grunnatriði prentlistar og búa til sín eigin einstöku prentverk.
Skemmtileg fjölskyldusmiðja fyrir alla aldur
Leiðbeinandi: Gregoire Romanet.
Takmarkað pláss – skráning nauðsynleg.
Skráning: fraedsla@listasafnarnesinga.is
Smiðjan er ókeypis.

Stopmotion smiðja fyrir fjölskyldur
23. maí 2026 frá kl. 15:00 – 17:00
Kynntu þér töfraheima stop-motion kvikmynda! Í þessari skapandi smiðju læra börn að gera hugmyndir sínar að lifandi stuttmyndum. Með einföldum efnum eins og leir, pappír og leikföngum kanna þátttakendur hreyfingu, frásagnarlist og sköpun, ramma fyrir ramma og margt fleira.
Í smiðjunni munum við læra grunnatriði stop-motion kvikmynda. Búa til einfalda persónur og leikmyndir úr leir, pappír eða hversdagslegum hlutum. Framleiða stuttar senur, sjá verkin lifna við á skjánum og deila lokaverkum með hópnum
Þessi smiðja hentar forvitnum hugsuðum og ungu listafólki sem vill kynnast stop-motion kvikmyndagerð á leikrænan og skapandi hátt. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg — bara taktu með þér ímyndunaraflið!
Skemmtileg fjölskyldusmiðja fyrir alla aldur
Leiðbeinendur: Thomasine Giesecke og Pascale Chau-Huu
Takmarkað pláss – skráning nauðsynleg.
Skráning: fraedsla@listasafnarnesinga.is
Smiðjan er ókeypis.