
Þar sem landið hefst
Sýning úr safneign safnsins.
Salur 4
12. september – 31. maí 2027
Þar sem landið hefst
Upplifun af landslagi er grunnur mannlegrar tilveru. Manneskjan lifir af landinu, í landinu og á því, skynjar það, virðir og hræðist það jafnvel. Manneskjan hefur einnig áhrif á umhverfi sitt, gengur á landið, breytir landslagi, eyðileggur og tekur pláss. Hún getur upplifað sig smáa og varnarlausa gagnvart náttúruöflunum. En hún getur líka upplifað sig æðri og mikilvægari en landið sem hún gengur yfir. Alltaf eigum við í stöðugu sambandi við landið, öllum stundum. Sama hvar við erum stödd á jörðinni. Landið er alltumlykjandi.
Titill sýningarinnar er sóttur í samnefnt verk úr safneign og vísar ekki aðeins til landsins sjálfs heldur þess augnabliks þegar náttúra verður að landslagi. Íslensk náttúra hefur lengi verið eitt helsta viðfangsefni íslenskrar myndlistar. Í fyrstu getur virst sem landslagsmálverk sé einfaldlega eftirlíking af landslagi, tvívíð mynd af þrívíðum veruleikanum. En listaverk eru þeim eiginleika gædd að vera sköpunarverk manneskju sem óhjákvæmilega setur hluta af sjálfri sér í verkið. Tilfinningalíf listamannsins hefur áhrif á útkomu verksins og skín í gegnum það. Sömuleiðis hefur tilfinningalíf áhorfandans áhrif á hvaða augum hann lítur það. Sama fjallið, sama hraunið eða sami sjóndeildarhringurinn getur borið ólíka merkingu eftir því hver horfir á það. Landslagið verður þannig til í samtali náttúrunnar, listamannsins og áhorfandans.
Á safneignarsýningunni Þar sem landið hefst eru sýnd valin verk úr safneign Listasafns Árnesinga. Safneignin telur í dag tæplega 600 verk, það elsta frá 1900 og það nýjasta frá 2025.
Stiklað er á stóru í gegnum sögu listasafnsins og minning Bjarnveigar Bjarnadóttur og Halldórs Einarssonar heiðruð, en framlag þeirra skipti sköpum fyrir stofnun safnsins.
Bjanveig Bjarnadóttir lagði grunninn að Listasafni Árnesinga þegar hún gaf Árnesingum málverkasafn sitt, þann 19. október 1963. Við formlega athöfn í bogasal Þjóðminjasafns Íslands afhenti hún 41 málverk eftir sautján listamenn, sem allir voru meðal helstu listamanna landsins á þeim tíma. Draumur Bjarnveigar var að fólk í sveitum landsins fengi notið myndlistar, en safnið er það fyrsta sem opnað var utan höfuðborgarsvæðisins. Hún vildi að sem flestir fengju að kynnast verkunum og njóta þeirra, ekki síst börn. Vonaðist hún til að skólar héraðsins myndu kynna nemendum sínum verkin. Upphaflega var Byggða- og listasafn Árnesinga til húsa við Tryggvagötu 23 á Selfossi en listasafnið festi kaup á húsnæði listskálans í Hveragerði um aldamótin og opnaði þar árið 2001.
Önnur mikilvæg gjöf til safnsins var frá Halldóri Einarssyni tréskurðameistara en hann gaf safninu árið 1969 allt tréverkasafn sitt, ásamt peningagjöf upp á 10.000 dollara.
Halldór Einarsson ólst upp í Brandshúsum í Flóa. Hann lærði tréskurð hjá Stefáni Eiríkssyni í Reykjavík og fluttist svo til Vesturheims árið 1922 þar sem hann dvaldi næstu 43 árin. Þar af bjó hann í 20 ár í einsetukofa í skógi fyrir utan Chicago. Allan tímann vann hann við tréskurð, skreytti húsgögn og skar út skúlptúra í tré. Halldór fékkst við ýmis viðfangsefni í skúlptúrum sínum en auk tréskurðar hjó hann einnig út í marmara og stein. Hann gerði skúlptúra af dýrum og fólki, sum verkanna voru trúarlegs eða andlegs efnis og oft hlaðin táknum. Halldór var í nánum tengslum við náttúruna og dýralíf í skóginum fyrir utan Chicago og bera verk hans þess merki.
Á safneignarsýningunni Þar sem landið hefst eru verk eftir listamenn á borð við Ásgrím Jónsson og Jóhannes S. Kjarval sett í samtal við nýrri verk eftir íslenska og erlenda listamenn, sem og valda skúlptúra eftir Halldór Einarsson. Verkin eiga það sameiginlegt að vísa á einhvern hátt í náttúru og landslag en aðferðir, efnisnotkun, litaval og sjónarhorn listamannanna eru ólík.
Sýningin býður upp á samtal um landslagsmálverkið og þróun þess, samspil manns og náttúru, virðingu fyrir umhverfi okkar og þá merkingu sem við gefum landslaginu.
Þessi verk verða til sýnis:
Jóhannes Kjarval, Án heitis / Untitled
Olía á striga / oil on canvas, 124 x 166 cm
Ásta Guðrún Eyvindsdóttir, Hrafninn, 1982
Prent á pappír / print on paper, 71 x 51 cm
Sigrid Valtingojer, Þar sem landið hefst, 1989
Prent á pappír / print on paper, 76 x 100 cm
Bernard Alligand, Tectonique. Retour d’Islande, 2021
Sandur og steinn á pappír / sand and stone on paper, 30 x 30 cm
Ragnheiður Jónsdóttir Ream, Frá Álftanesi, 1975
Olía á striga / oil on canvas, 64 x 69 cm
Bernard Alligand, Tectonique. Retour d’Islande, 2021
Sandur og steinn á pappír / sand and stone on paper, 30 x 30 cm
Bernard Alligand, Tectonique. Retour d’Islande, 2021
Sandur og steinn á pappír / sand and stone on paper, 30 x 30 cm
Sigríður Björnsdóttir, Berðu mig upp til skýja, 1978
Akrýl á striga / acrylic on canvas, 14 x 19 cm
Ásgrímur Jónsson, Keilir á Reykjanesi, 1920
Vatnslitur á pappír / watercolor on paper, 27 x 44cm
Ásgrímur Jónsson, Frá Þingvöllum, Öxarárfoss, 1940
Vatnslitur á pappír / watercolor on paper, 55 x 73 cm
Höskuldur Björnsson, Tveir andarungar
Prent á pappír / print on paper, 12 x 17 cm
Valtýr Pétursson, Landslag, 1987
Olía á striga / oil on canvas, 35 x 35 cm
Torfi Harðarson, Fossinn, 1980
Teikning á pappír / drawing on paper, 72 x 52 cm
Matthías Sigfússon, Öxarárfoss, 1937
Vatnslitur á pappír / watercolor on paper, 41 x 51 cm
Höskuldur Björnsson, Tveir andarungar
Prent á pappír / print on paper, 12 x 17 cm
Mike Vos, Óvænt uppspretta, 2022
Ljósmyndun / photograph, 80 x 60 cm
Gunnlaugur Scheving, Frá Austurlandi
Olía á striga / oil on canvas, 42 x 49 cm
Jóhannes Kjarval, Strandatindur við Seyðisfjörð, 1922
Vatnslitur á pappír / watercolor on paper, 30 x 41 cm
Johann Nepomuk Geller, Frá Þingvöllum
Olía á striga / oil on canvas, 23 x 34 cm
Valtýr Pétursson, Án heitis, 1984
Olía á masonit / oil on hardboard, 81 x 90 cm
Kristján H. Magnússon, Skjaldbreiður, 1933
Olía á striga / oil on canvas, 60 x 78 cm
Gísli Jónsson, Af Hestfjalli
Olía á striga / oil on canvas, 134 x 206 cm
Torfi Harðarson, Á bjargi, 1985
Olía á striga / oil on canvas, 65 x 50 cm
Halldór Einarsson, Grænlenskt sauðnaut
höggmynd úr viði / Carved wooden sculpture
Halldór Einarsson, Alda
beinaskúlptúr / bone sculpture
Halldór Einarsson, Dýr
steinskúlptúr / stone sculpture
Halldór Einarsson, Hestur
Marmarskúlptúr / marble sculpture
Halldór Einarsson, Geirfugl
höggmynd úr viði / Carved wooden sculpture
Halldór Einarsson, Rostungur
Marmarskúlptúr / marble sculpture
Halldór Einarsson, Fiðrildi, 1967
Steinn og marmari / stone and marble sculpture
Halldór Einarsson, The victim
Marmarskúlptúr / marble sculpture
Halldór Einarsson, Hreysikötturinn
Höggmynd úr viði / Carved wooden sculpture
Halldór Einarsson, Fugl
skúlptúr úr beini / bone sculpture
Sýningarstjóri: Alda Rose Cartwright
Undirbúningur og rannsókn: Alda Rose Cartwright, Anna Karen Skúladóttir og Laurine Cratchley
