
Líffræði Mars
Ilana Halperin
Sýningarstjórar: Claire Cousins og Catriona McAra
Anddyri
13. september – 31. október 2025
Listsköpun Ilönu Halperin (f. 1973) einkennist af stöðugum og djúpum áhuga á jarðfræðilegri fagurfræði þar sem hún sameinar mannlega nálægð og ljóðræna sýn á mælingar og skilning á svokölluðum „djúpum tíma“. Hún fæddist sama ár og Eldfell gaus á Heimaey og hefur frá því seint á tíunda áratugnum reglulega dvalið á Íslandi í tengslum við rannsóknir sínar.
Frá árinu 2022 hafa þessi nýju verk tekið á sig mynd í gegnum vettvangsvinnu á jarðhita- og setmyndunarstöðum bæði á Íslandi og á Orkneyjum. Þar skoðar hún þessi svæði sem svonefnd „Mars-líki“ – landsvæði sem gera okkur kleift að tengjast plánetunni Mars sem nokkurs konar systurplánetu okkar.
Rannsókn Ilönu á 400 milljón ára gömlum strýtuþörungum og virkni hitakærra örvera í nútímanum hefur leitt af sér teikningar og grafíkmyndir unnar í mjólkurstein af jaðarlífverum, litaðar með jarðvegi og okkri, auk víðfeðmrar vatnslitamyndaraðar þar sem leitast er við að nema litróf Mars.
Á Mars má finna eitt stærsta eldfjall sólkerfisins, Olympus Mons, sem minnir á líkamsop þegar horft er á það úr flugi. Í kringum þetta risafjall teygir sig landslag fullt af gljúfrum, gígum, þakið rauðu litarefni. Slík jarðfræðileg mótun og mörkun skapar svokallað „kaoslandslag“, sem veitir listakonunni innblástur við nýjustu verk hennar.
Í gegnum annars konar nálgun við Rauðu plánetuna – þar sem hinsegin og feminísk sjónarhorn eru í forgrunni – býður Ilana upp á andóf við karllægum frásögnum um Mars sem „nýlendu“. Hún beinir kastljósinu að jarðfræðilegri arfleifð Mars og siðferðilegum álitamálum varðandi tengingu við aðrar plánetur. Með því að vinna í gegnum jarðsögulegar aldir þessarar fornu systurplánetu okkar og með fjölbreytilegum aðferðum – teikningu, skúlptúrum og ljósmyndun – dregur hún fram sýnishorn af efnislegri uppbyggingu Mars.
19. júlí 2025 / 15:00
Primer / Felt Event
Dr. Catriona McAra, lektor í listasögu við Háskólann í Aberdeen, stýrir samtali milli listakonunnar Ilana Halperin og Dr. Claire Cousins, jarðvísindakonu við Háskólann í St. Andrews. Þær munu ræða hlut kvenna í jarðvísindum sem tengjast rannsóknum á plánetum og segja frá vettvangsferðum sínum til Orkneyja og Íslands, þar sem þær leituðu „skyldleika“ í landslagi til að öðlast betri skilning á klettamyndunum á Mars.
Eftir sameiginlega vettvangsvinnu á jarðhitasvæðum ofan við Hveragerði hlakka þær til að snúa aftur og miðla niðurstöðum sínum. Á þessum viðburði verður jafnframt frumkynnt sérútgáfa af grafíkverki Ilönu sem ber titilinn Við erum öll jaðarlífverur. Viðburðurinn er inngangur að sýningunni Líffærafræði Mars, sem opnar í Listasafni Árnesinga þann 13. september 2025.
Allir velkomnir!
Þessar rannsóknir hafa hlotið styrk frá bresku geimvísindastofnuninni (UK Space Agency) og Vísinda- og tækniráðuneytinu (Science & Technology Facilities Council).